Kerið, gígvatn í Grímsnesi

Armonia Heill dagur

Heill dagurí náttúrunni

Tónheilun, hugleiðsla og skoðunarferð um Suðurland, með mat og leiðsögn allan daginn.

Sléttlendi á Suðurlandi með fjöll í fjarska

Dagur til að hvílast og tengjast

Heill dagur þar sem við blöndum saman tónum, náttúru og slökun í sveitinni á Suðurlandi.

Þú tekur þátt í leiddri hugleiðslu, tónheilun og Reiki, andar að þér íslenskri náttúru og hvílist í kyrrðinni. Guðný og Stefán leiða daginn og halda rýmið fyrir þig.

Á leiðinni förum við á rúntinn og skoðum fallega staði á Suðurlandinu.

Allir eru velkomnir, einir, með maka, vinum eða í hópi.

Verð og innifalið

Verð á mann. Hafðu samband fyrir hópatilboð.

Innifalið

  • Matur yfir daginn, þar á meðal hádegis- og kvöldverður
  • Vatn, te og kaffi allan daginn
  • Leidd hugleiðsla, tónheilun og Reiki
  • Skoðunarferð 
  • Akstur á meðan á deginum stendur
  • Gjöf: hálsmen úr eldfjallaösku

Ekki innifalið

  • Akstur frá Reykjavík eða Keflavíkurflugvelli (hægt að bæta við)
  • Ferðatryggingar

Dagskrá dagsins

  1. Morgunmatur og hreyfing

    Léttur morgunmatur og mjúk hreyfing til að vekja líkamann.

  2. Raddheilun

    Við stillum orkustöðvarnar með röddinni.

  3. Hugleiðsla með tónheilun

    Leidd hugleiðsla með gong og hljóðskálum.

  4. Hádegisverður og skoðunarferð

    Hádegisverður á veitingastað í sveitinni og skoðunarferð.

  5. Hljóð og Reiki

    Tónheilun og Reiki í rólegheitum.

  6. Eldathöfn og kirtan

    Eldathöfn með "ceremonial" kakó, trommuhringur og söng.

  7. Hugleiðing

    Við ljúkum deginum með hugleiðingum og dagbókarskrifum.

Bústaðurinn í snjó við sólsetur

Algengar spurningar

Getið þið sótt mig?

Já. Við getum sótt þig á Selfoss, í Reykjavík eða á Keflavíkurflugvöll gegn aukagjaldi. Láttu okkur vita í beiðninni.

Hentar þetta byrjendum?

Já. Dagurinn hentar öllum, hvort sem þú hefur prófað tónheilun og hugleiðslu áður eða ekki.

Get ég fengið sérfæði?

Já. Grænmetis-, vegan-, glútenlaust og annað sérfæði er í boði ef þú lætur okkur vita fyrirfram.

Hvað ef ég þarf að afbóka?

Þú færð fulla endurgreiðslu ef þú afbókar að minnsta kosti einum degi áður.

Get ég gist?

Já, hægt er að bæta við nótt fyrir eða eftir daginn fyrir 12.900 kr.

I needed to reflect, recharge and reconnect with myself and with nature. Everything felt aligned and I just had to take the plunge and listen to my intuition.
Martha, London

Komdu eins og þú ert

Segðu okkur hvað þú vilt og hvenær. Við höfum samband og finnum tíma saman.