Leikið á gong yfir konu sem liggur og hvílist

Armonia Kyrrð & sköpun

Kyrrð &sköpun

Dagsretreat með hugleiðslu, tónheilun og Yoga Nidra, og einni skapandi vinnustofu fyrir allan hópinn.

Heimagerð sápa og krem á steini, með þurrkuðum blómum

Skapaðu. Hvíldu. Taktu eitthvað með heim.

Heill dagur þar sem kyrrð og sköpun haldast í hendur.

Við byrjum í kyrrðinni með hugleiðslu, tónheilun og Yoga Nidra. Svo vinnur hópurinn saman í einni vinnustofu: kaldri sápugerð eða kremgerð.

Í lok dagsins tekurðu heim það sem þú bjóst til sjálf.

Dagurinn fer fram í Langamýri í Grímsnesi, með Guðnýju Láru og Stefáni.

Kyrrð & sköpun hentar vel fyrir vinnustaði, starfsmannahópa og vinahópa sem vilja hópefli eða starfsdag með ró og sköpun.

Verð og dagskrá

Sendu okkur beiðni og við finnum dag sem hentar hópnum.

Dagurinn

  • Hugleiðsla
  • Tónheilun með gongi og hljóðskálum
  • Yoga Nidra
  • Vinnustofa fyrir allan hópinn: köld sápugerð eða kremgerð

Svona virkar þetta

  1. Þið sendið beiðni

    Segðu okkur hvaða dag hentar og hvort hópurinn vill sápugerð eða kremgerð.

  2. Við finnum dag saman

    Við höfum samband, finnum dag og svörum öllum spurningum.

  3. Kyrrð og sköpun

    Hópurinn hvílist, skapar og fer heim með eitthvað fallegt.

Hljóðskál haldið yfir gesti sem liggur og hlustar

Algengar spurningar

Þarf ég einhverja reynslu?

Nei, hvorki í hugleiðslu né sápu- eða kremgerð. Við leiðum ykkur í gegnum allt.

Hvað er Yoga Nidra?

Yoga Nidra er leidd djúpslökun sem þú gerir liggjandi.

Sápugerð eða kremgerð?

Hópurinn velur saman aðra vinnustofuna þegar dagurinn er bókaður.

Hvar fer þetta fram?

Í Langamýri 1 í Grímsnesi, um klukkustund frá Reykjavík.

Hentar þetta fyrir vinnustaði?

Já. Dagurinn hentar vel sem hópefli eða starfsdagur fyrir vinnustaði, og líka fyrir vinahópa og saumaklúbba.

I was looking for a spiritual community in Iceland and the hosts provided space for just that. The weekend was full of music and great spiritual conversation and community!
Elana, Bretlandi

Komdu eins og þú ert

Segðu okkur hvað þú vilt og hvenær. Við höfum samband og finnum tíma saman.